Notandanafn: Lykilorð: gleymt!
Politica



N1
Carlsberg - auglýsing

Fréttir
Nova 
þri 9. feb.
Löngu er kominn tími á að huga að næsta föstudegi og harmar Politica það hjartanlega að tilkynna ykkur það að nú í fyrsta sinn í vetur var Vísindaferð að detta upp fyrir.

Stjórn Politica mun að sjálfsögðu bæta upp fyrir það og erum við að skipuleggja gott föstudagskvöld fyrir ykkur! Það verður auglýst fyrir klukkan fjögur á morgun :)

Við vonum að þetta raski ekki ró ykkar háttvirtu nemar.

Með vinsemd og virðingu
Stjórn Politica

Sjá alla frétt og umræðu //
þri 9. feb.
Framadagar haldnir miðvikudaginn 10. febrúar milli 11 og 17 í Háskólabíói

26 fyrirtæki úr öllum geirum atvinnulífsins! Mikill fjöldi af áhugaverðum fyrirlestrum! Lifandi íslensk tónlist, meðal annars Agent Fresco og Útidúr!

Framadagar eru í líkingu við stóra háskóladaginn nema í stað þess að kynna háskóla eru fyrirtæki allstaðar úr atvinnulífinu að kynna starfsmöguleika að loknu námi eða meðfram námi.

Sjá alla frétt og umræðu //
mán 8. feb.
Heil og Sæl!

Núna styttist óðum í ævintýrakvöldið mikla sem verður eins og áður segir 19. febrúar eftir tæpar tvær vikur!

Til þess að geta haft kvöldið sem veglegast fyrir ykkur vantar okkur smá aur í kassann.

Við ætlum því að vera með fatamarkað í Kolaportinu helgina 13-14 febrúar.

Við hvetjum því alla til þess að fara í snögga skoðunarferð um skápinn sinn og kanna hvort að þeir eigi ekki einhverjar flíkur sem gætu heldur betur komið að góðum notum annars staðar.

Þeir sem vilja leggja sitt af mörkum til þess að gera árshátíðina sem glæsilegasta og láta af einhverjum flíkum geta haft samband við árshátíðarnefnd og við erum til í að sækja fötin ef þess þarf.

Herdís Sólborg: 8484527
Freyja Steingrímsdóttir: 6167498
Hrefna Rós: 8236030
Inga Valgerður: 6934383
Sara Sigurðardóttir: 8494794
og síðast en ekki síst Vera Dagsdóttir: 8230608

Endilega bjallið og þannig getum við öll lagt okkar af mörkum fyrir ævintýralegasta kvöldi ársins!
Kær kveðja
Árshátíðarnefnd

Sjá alla frétt og umræðu //
þri 2. feb.
Heil og sæl elskulegu Politica meðlimir.

Það eru enn örfá sæti laus í rútuna! Við ætlum að lækka verð fyri utanaðkomandi fólk niður í 6400 þar sem að margir vilja taka maka eða besta vin með og viljum við jú endilega koma til móts við þær þarfir.

Þeir sem eru utan Politica og eru búin að greiða 7900 kr fá mismuninn greiddann til baka.
Þú getur komið með í þessa trylltu ferð ef þú leggur inn á: 137-26-015880, kt: 640393-2389 og sendir kvittuna á politica@hi.is
Þessi ferð er eitthvað sem að sannur politica meðlimur má ekki missa af.

Það er eins og áður segir örfá sæti laus og verður það gullna reglan sem gildir fyrstur borgar fyrstur fær.
Þeir sem að borga og eru of seinir fá endurgreitt strax til baka með skýringu.

Inn á heimabankann núna og þú gætir komist með í ferð ársins!

Með kveðju
Stjórn Politica

Sjá alla frétt og umræðu //
mán 1. feb.
Einungis fjórir dagar í tryllinginn!

Helgina 5-7 febrúar ætlum við að njóta lífsins innan um fjöllin og fjörðin í blómabænum Akureyri. Þessi ferð verður öllum ógleymanleg.
Kostnaður er: 6400kr fyrir Politica meðlimi sem er langtum ódýrara en annars
staðar! (innifalið er rúta og gisting alla helgina!)

Kostnaður fyrir þá sem að standa utan Politica er 7900 krónur og inni í því er innifalið allt það sem hinn heppni Politica meðlimur fær.

Það sem er innifalið í þessari ferð er:
Rúta fram og til baka.
Rúta sem að keyrir okkur í vísindaferðir og í Hlíðafjall
Gisting í Þórsheimilinu. Þar sem við höfum tvo sali. Annar verður fyrir stráka og hinn fyrir stelpur. Aðgengi er þar í sturtu og sundlaug er við hliðina á.
Vísindaferð í Kalda-Bjórverksmiðjuna
Vísindaferð í Vífilfell
Tilboð fyrir okkur á hinum ýmsu stöðum
Gleði-hamingja-ást og umhyggja!

Það sem þið þurfið að taka með ykkur:
Skíðadót ef þið ætlið á skíði
Sunddót
Handklæði
Dýna
Svefnpoki
Tannbursti
Tannkrem
Sokkar
og það sem rímar við sokkar
Djammföt
Almenn gleði og opið viðmóta gangvart því yndislega fólki sem býr á Akureyri


Þeir sem að ekki komast á þessum tíma eða voru of seinir í skráningu geta komið á eigin bílum. Það er vissulega dýrari kostur þegar uppi er staðið.
Þeir aðilar sem gera það þurfa að greiða Politica 3500 krónur fyrir gistingu og rútuferðum innanbæjar. Leggja verður inn á reikninginn okkar fyrir miðnætti á fimmtudegi ef að þið ætlið þá leið.
Hinir sem að ætla að koma með rútunni og spara þar með talsverðann pening verða að leggja inn á politica fyrir hádegi á morgun.
Séu þeir ekki búnir að því þá verður þeim eytt út af lista og nýir komast inn.
Skráning í skíðaferðina er enn í gangi og hvetjum við fólk endilega til að skrá sig þar sem að talsverðar líkur séu á því að einhver detti út.

Sjá alla frétt og umræðu //
Sjá Allar fréttir //

Ertu ánægð(ur) með núverandi ríkisstjórn?
Já, hæstánægður
Bara nokkuð ánægður
Hvoki né
Mætti gera betur
Hefur ekki staðið sig vel
Er mjög óánægður með ríkisstjórnina


12.02. Íslenskir Aðalverktakar
19.02. Árshátíð Politica

SMÞMFFL
311234
5
6
7891011
12
13
1415161718
19
20
21222324252627
28123456


G-STAR RAW
OASIS
Laugarásbíó

© 2010 Félag stjórnmálafræðinema, politica@hi.is